Ragnar Halldórsson ráðgjafi hringdi í skólastjóra Árbæjarskóla, Þorstein Sæberg, en samskiptum þeirra lauk er Þorsteinn skellti á Ragnar, að hans sögn. Í kjölfarið sendi Ragnar bréf á Þorstein, starfsmenn skólans, menntamálaráðuneytið og menntasvið Reykjavíkurborgar sem hófst á þessum orðum: „Sæll Þorsteinn. Það var huggulegt af þér að skella á mig þegar ég hringdi í þig sem almennur borgari sem þekkir börn í Árbæjarskóla, til að fræðast um hin alvarlegu eineltisvandamál skólans í gær.“
Bréfið hélt áfram og sagði Ragnar meðal annars: „Þótt þú virtist halda að það sé afsökun að einelti viðgangist e.t.v. í öðrum skólum, svona eins og að það afsaki ofbeldi að benda á að það viðgengst annars staðar, viðurkenndirðu þó að 0 umburðarlyndi gagnvart einelti væri rétt, þ.e. að ekki væri hægt að réttlæta að 3 eða 5% eineltishlutfall í hvaða barnaskóla sem er væri eðlilegt.“
Ragnar segist hafa hringt tvisvar eða þrisvar áður en hann náði í Þorstein. „Símtalið varði stutt. Þegar við náðum saman fór hann strax í mikla vörn þótt ég væri kurteis. Áður hafði ég talað við skólastjóra Garðaskóla um sama efni og átt við hann mjög gott og vinsamlegt samtal sem og bæjarstjórann þar.
Ég kynnti mig með nafni og hann spurði hver ég væri. Ég sagði honum að ég væri ráðgjafi og að ég hefði áhuga á að fræðast um málefni Árbæjarskóla varðandi einelti, líkt og ég hafði sagt skólastjóra Garðaskóla. Þá svaraði hann því til að einelti væri ekki verra í Árbæjarskóla en í öðrum skólum og spurði hvort ég vissi um einhvern skóla þar sem ekkert einelti er.
Ég sagði að það gæti vel verið, en það skipti engu máli, við værum að ræða Árbæjarskóla. Hann sagði þá að níutíu prósent nemenda hefðu það gott. Hvað með hin tíu prósentin spurði ég þá. Þá var hann við það að missa stjórn á skapi sínu. Og þegar ég sagði að núll prósent umburðarlyndi fyrir einelti væri nauðsynlegt samsinnti hann því en bætti því við að hann ætlaði sér ekki að ræða meira við mig. Jæja, er það ekki, hvers vegna ekki? spurði ég og hann skellti á,“ segir Ragnar.
Nánar er fjallað um málið í helgarblaði DV sem kom út í dag



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
Ólafur flýgur framhjá Þóru
