ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Taprekstur hjá Dorrit

Eignarhaldsfélag forsetafrúarinnar Dorrit ehf. tapaði 21 þúsund krónum á síðasta ári
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:34 › 4. nóvember 2011
Forsetafrúin ástsæla rekur lítið eignarhaldsfélag sem ber fornafn hennar. Rekstur þess er nánast enginn og tap síðasta árs nam 21 þúsund krónum.

Forsetafrúin ástsæla rekur lítið eignarhaldsfélag sem ber fornafn hennar. Rekstur þess er nánast enginn og tap síðasta árs nam 21 þúsund krónum.

Dorrit ehf., félag sem er alfarið í eigu Dorritar Moussaieff forsetafrúar, átti eignir upp á tæpar 17 þúsund krónur í lok árs 2010 samkvæmt ársreikningi félagsins. Á meðan nema skuldir félagsins um 905 þúsund krónum.

Tap félagsins á síðasta ári nam 21 þúsund krónum.

Viðskiptablaðið fjallaði um málið á vef sínum í gær. Þar kom fram að eigið fé Dorrit ehf. sé neikvætt um tæpar 905 þúsund krónur sem skýrist af uppsöfnuðu tapi að upphæð 1,4 milljóna króna.

Eignarhaldsfélagið var stofnað fyrir sex árum síðan og þrátt fyrir að rekstur félagsins sé sama sem enginn þá er tilgangur þess smásala á úrum og skartgripum. Uppsafnað tap félagsins er frá stofnárinu 2005.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?