Tap upp á milljón. Formaður sóknarnefndar Háteigskirkju segir að tap upp á milljón hafi verið af orgelssjóðnum árið 2008.
Orgelsjóður Háteigskirkju var settur í peningamarkaðs- og hlutabréfasjóð hjá Íslandsbanka, síðar Glitni, á árunum fyrir íslenska efnahagshrunið. Þetta kemur fram í ársreikningum eignarhaldsfélags sem stofnað var utan um orgelsjóðinn og í máli Sigríðar Guðmundsdóttur, formanns sóknarnefndar kirkjunnar. Orgelssjóðurinn var stofnaður árið 2004 til að halda utan um fjárframlög til kirkjunnar vegna orgelkaupa. Sóknarbörn í Háteigskirkju gáfu svo fé í sjóðinn.
Sigríður segir að orgelsjóðurinn hafi verið 4.8 milljónir króna þegar hann var stofnaður árið 2004. Á sóknarfundi árið 2007 var hins vegar ákveðið að leggja peningana annars vegar í peningamarkaðssjóð og hins vegar í hlutabréfasjóð.
Fram kemur í umfjöllun um málið í DV í dag að orgelsjóðurinn hafi tapað milljón árið 2008.
Meira »


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
