Fjörtíu og tveimur starfsmönnum sameinaðs banka Byrs og Íslandsbanka hefur verið sagt upp. Þá hefur verið gengið til samninga um starfslok tuttugu og eins starfsmanns til viðbótar og munu því alls sextíu og þrír starfsmenn hætta störfum hjá bankanum um næstu mánaðarmót. Nýverið voru kaup Íslandsbanka á Byr samþykkt.
Talsvert fleiri konur missa vinnuna í þessum uppsögnum. Sextán körlum hefur verið sagt upp en tuttugu og fjórum konum. Tölurnar ná ekki til þeirra einstaklinga sem ekki var sagt upp en hætta störfum hjá bankanum vegna annarra ástæðna um mánaðarmótin. Í tilkynningu frá bankanum vegna uppsagnanna og starfslokanna er sérstaklega tekið fram að talsvert fleiri starfsmenn sameinaða bankans konur, eða um 66,5 prósent.
Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að aðgerðirnar séu „nauðsynlegar til að tryggja að kostnaður bankans sé í samræmi við umsvif, arðsemiskröfur, og starfsumhverfi á íslenskum fjármálamarkaði“. Íslandsbanki skilaði 29,4 milljarða króna hagnaði á síðasta ári.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
