Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, fundaði með starfsmönnum bankans í síðustu viku. Þar var farið yfir áform um sameiningu útibúa um áramótin. Mynd Heiða Helgadóttir
„Þetta eru starfsmenn úr báðum bönkum, það koma tæplega tveir þriðju úr Byr og restin úr Íslandsbanka,“ segir Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, um uppsagnirnar sem tilkynnt var um fyrr í dag. „Þetta er úr flestum deildum bankans. Þetta dreifist yfir allan bankann.“ Guðný segir að engir framkvæmdastjórar séu í hópnum en forstöðumenn séu meðal þeirra sem sagt var upp.
Guðný segir að endurskipulagningu í höfuðstöðvum bankans sé lokið með aðgerðum dagsins en hún segir að fleiri eigi von á uppsagnarbréfi eftir áramótin þegar ráðist verður í sameiningu útibúa. „Það er bara unnið að sameiningu útibúanna og það er búið að tilkynna starfsmönnum með hvað hætti það verður gert,“ segir hún en ráðist verður í endurskipulagningu vegna sameiningu útibúanna um áramótin.
Eins og kom fram í tilkynningu frá Íslandsbanka vegna uppsagnanna eru aðgerðirnar „nauðsynlegar til að tryggja að kostnaður bankans sé í samræmi við umsvif, arðsemiskröfur, og starfsumhverfi á íslenskum fjármálamarkaði“. Íslandsbanki skilaði 29,4 milljarða króna hagnaði á síðasta ári en Guðný Helga segir að það sé ekki hægt að horfa á þær tölur.
„Skattaumhverfi og annað hefur breyst. Það er verið að tala um að leggja á sérstakan launaskatt á fjármálafyrirtæki og bankasýslan og aðrir eigendur gera ákveðna arðsemiskröfur á bankann,“ segir hún og nefnir að um helmingur hagnaðar síðasta árs hafi verið vegna endurmats á lánasafni bankans. „Þetta er mjög erfitt og erfiður dagur fyrir starfsfólkið að kveðja samstarfsfélaga sína.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
