Alþingi hefur samþykkt sölu á hlut ríkisins í Byr hf. til Íslandsbanka. Íslandsbanki kaupir 11,8 prósenta hlut ríkisins og 88,2 prósenta hlut skilanefndar Byrs á 6,6 milljarða króna. Fjármálaeftirlitið, Samkeppniseftirlitið og Eftirlitsstofnun EFTA höfðu áður samþykkt kaupin og með samþykki Alþingis hafa bankarnir nú verið sameinaðir.
Fram kemur í tilkynningu frá Íslandsbanka verður sameinaður efnahagsreikningur í kjölfarið 814 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall vel yfir 20 prósent en lágmarkskrafa FME er nú 16 prósent.
Útibú bankans verða rekin áfram með óbreyttu sniði fyrst um sinn en gera má ráð fyrir að fyrsta sameining útibúa fari fram eftir áramót. Viðskiptavinir Byrs hf. geta áfram notað alla innlánsreikninga, greiðslukort og heimabanka eins og áður, sem og aðra þjónustu.
Stefnt er að því að sameiningarferlinu ljúki á fyrstu mánuðum næsta árs.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir í tilkynningu að hún fagni þessum tímamótum og bjóði nýja viðskiptavini og starfsfólk velkomið í sameinaða banka.
„Sameining Íslandsbanka og Byrs þýðir að við erum orðin eitt öflugasta fjármálafyrirtæki á Íslandi. Í krafti stærðarinnar vonast ég eftir að við getum veitt viðskiptavinum okkar enn betri fjármálaþjónustu. Sameiningin hefur auk þess í för með sér ákveðna hagræðingu sem er afar mikilvægt skref í enduruppbyggingu íslenska fjármálakerfisins. Fyrirtækin eiga sér merka sögu, sterk gildi og fyrirtækjamenning þeirra er mjög áþekk. Við munum leggja áherslu á að taka það besta úr hvorum banka og mynda eina öfluga heild.“
Jón Finnbogason, forstjóri Byrs, segir að nú sé óvissutíma um framtíð Byrs lokið og tækifæri skapast til að horfa til framtíðar.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
