Alþjóðlega greiningarfyrirtækið Standard & Poors lítur efnahagslega stöðu Íslands nú jákvæðari augum en áður. Til marks um það hefur fyrirtækið fært horfur Íslands úr „neikvæðum“ í „stöðugar“.
Vantar fjárfestingu
Jafnframt kemur fram í mati Standard & Poors að horfur gætu færst úr stöðugum í „jákvæðar“, ef landið gæti laðað að meiri erlenda fjárfestingu. Það sem heldur aftur af jákvæðari horfum er mikil skuldsetning landsins. „Mat á horfum Íslands takmarkast af háum erlendum og opinberum skuldum, sem við teljum að gætu orðið ennþá þyngri byrði, ef ekki væri fyrir gjaldeyrishöft sem draga úr getu íbúanna til að fjárfesta erlendis og getu utanaðkomandi aðila til að skipta krónum út fyrir erlendan gjaldeyri,“ segir í yfirlýsingu Standard & Poors.
„Efnahagslíf Íslands er að ná sér eftir kerfishrun bankanna og er aftur komið í jákvæðan, hagrænan vöxt eftir tveggja ára alvarlegan samdrátt,“ segir ennfremur.
Betri horfur en í evrulöndum
Gert er ráð fyrir 2,5% hagvexti hér á landi á þessu ári og því næsta. Á sama tíma eru horfur á aðeins 1,6% hagvexti á evrusvæðinu í ár og 1,1% á næsta ári.
Standard & Poors er eitt af þremur stærstu greiningarfyrirtækjum heims, ásamt Fitch ratings og Moody's. Samkvæmt yfirlýsingum Fitch ratings er Ísland langt frá því að hækka um flokk, samkvæmt þeirra mati. Ástæðan er að skuldavandi heimilanna er enn óleystur, að mati fyrirtækisins.
Þess ber að geta að í dag færði Fitch lánshæfni Portúgals niður í ruslflokk. Gert ráð fyrir 3% samdrætti í portúgalska hagkerfinu á næsta ári.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
