ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Arion banki mun leysa til sín Blikastaðalandið

Umdeilt landsvæði sem tengist ólögmætri einkavæðingu Íslenskra aðalverktaka
08:30 › 22. nóvember 2011
Á næstu vikum skýrist hvort Arion banki muni leysa til sín Blikastaðalandið svokallaða á milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur frá dótturfélagi Eyktar. Líklega mun bankinn leysa landið til sín.

Á næstu vikum skýrist hvort Arion banki muni leysa til sín Blikastaðalandið svokallaða á milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur frá dótturfélagi Eyktar. Líklega mun bankinn leysa landið til sín.

Arion banki mun að öllum líkindum leysa Blikastaðalandið í Mosfellsbæ til sín á næstu vikum út af 6,6 milljarða veði sem bankinn á í landinu. Bleiksstaðir, eigandi Blikastaðalandsins, sem er 150 hektarar að stærð, keypti landið af eignarhaldsfélaginu EAV ehf. fyrir 65 milljónir evra, rúmlega 6,2 milljarða á þávirði, í febrúar 2008. Kaupþing fjármagnaði viðskiptin. Bleiksstaðir er að 80 prósenta leyti í eigu eigu Holtasels, móðurfélags verktakafyrirtækisins Eyktar. Eigandi Eyktar er Pétur Guðmundsson, sem jafnframt er stjórnarformaður þess.

Í ársreikningi Bleiksstaða fyrir árið 2009 segir að vafi leiki á rekstrarhæfi félagsins. Félagið tapaði 2,3 milljörðum króna það árið og var eigið fé þess neikvætt um tæpa fimm milljarða. Í ábendingu Deloitte, endurskoðanda félagsins, segir að félagið uppfylli ekki skilyrði lánasamninga sinna og að Arion banki hafi gjaldfellt lán félagsins árið 2009: „Af því gefnu að ekki náist samningar við lánveitanda er rekstrarhæfi félagsins brostið,“ segir í ábendingu Deloitte. Heildarskuldir félagsins námu rúmum 12 milljörðum króna í lok árs 2009. Væntanleg yfirtaka Arion banka á Blikastaðalandinu þarf því ekki að koma á óvart.

Þegar Blikastaðalandið var selt til Bleiksstaða í ársbyrjun 2008 stóð til að byggja um 1.800 íbúðir á svæðinu. Ekkert varð þó af því að hafist væri handa við þessa miklu uppbyggingu.

Í DV í dag er rifjað upp að Blikastaðalandið var í eigu Íslenskra aðalverktaka þegar ríkið seldi 40 prósenta hlut sinn í fyrirtækinu til þáverandi æðstu stjórnenda fyrirtækisins árið 2003. Hæstiréttur dæmdi einkavæðingu verktakafyrirtækisins ólögmæta í maí 2008 en eftir einkavæðinguna kom í ljós að landið hafði verið vanmetið þegar ríkið seldi hlutinn í Íslenskum aðalverktökum. Rúmlega fimm milljarða munur var á bókfærðu verðmati landins þegar ríkið seldi hlut sinn í fyrirtækinu og þegar kaupendur seldu Blikastaðalandið til Eyktar 2008.

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?