Miklar sögusagnir hafa gengið um Iceland Express og Astraeus um helgina. Hugsanlegt er að Astraeus muni hætta að fljúga áætlunarflug fyrir Iceland Express og annar aðili taka við. Pálmi Haraldsson er eigandi Iceland Express og Astraeus.
Stórra tíðinda er að vænta frá Iceland Express og systurfélagi þess Astraues í dag, mánudag, Sögusagnir hafa gengið um helgina um rekstrarerfiðleika hjá Astraeus og að fyrirtækið muni hætta að fljúga áætlunarflug fyrir ferðaskrifstofuna Iceland Express. Bæði fyrirtækin eru í eigu Pálma Haraldssonar fjárfestis.
Í gær, sunnudag, var tilkynnt að búið væri að hætta við flug Iceland Express til Bandaríkjanna í dag, mánudag. Til stóð að Astraeus myndi hætta áætlunarflugi með farþega Iceland Express til Bandaríkjanna í byrjun næsta árs, nánar tiltekið þann 9. janúar 2012, en breyting á þessu var tilkynnt í gær. Breytingin var tilkynnt á starfsmannafundi hjá Iceland Express sem haldinn var í London um helgina þar sem jólahlaðborð fyrirtækisins fór fram.
Hver nákvæmlega ástæðan er fyrir þessu liggur ekki fyrir. Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Iceland Express, bar því við í gær að flugið til Bandaríkjanna væri of dýrt fyrir ferðaskrifstofuna. Sögusagnir hafa gengið um að Astraeus sé á leiðinni í þrot og muni hætta flugi fyrir Iceland Express frá og með deginum í dag. Þetta hefur hins vegar ekki fengið staðfest. Ein sagan gengur út á það að Astraeus muni hætta að fljúga með farþega Iceland Express í áætlunarflugi þar sem nýtt flugfélag hafi verið fundið til að sinna því. Flugfélagið sem nefnt hefur verið til sögunnar er danska leiguflugfélagið Jet Time. Einnig hefur ónefnt tékkneskt flugfélag verið nefnt til sögunnar sem nýr þjónustuaðili Iceland Express. Einn af heimildarmönnum DV segir um málið: ,,Það er nánast öruggt að Astraeus mun hætta að fljúga fyrir Iceland Express."
Ef þetta er raunin þá er sá möguleiki fyrir hendi að Pálmi Haraldsson hafi hugsanlega fundið kaupanda að Astraeus eða að hann hafi fundið annan aðila sem er reiðubúinn að leigja þotur Astraeus til annarra verkefna. Eins og áður segir á Pálmi bæði Iceland Express og Astraeus.
Tíðinda er að vænta um málið síðar í dag, mánudag.
Ekki náðist í Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformann Astraeus og framkvæmdastjóra eignarhaldsfélagsins Fengs, við vinnslu greinarinnar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í allan gærdag. Fengur er móðurfélag bæði Iceland Express og Astraeus.
Miklar hræringar hafa verið innan flug- og ferðaskrifstofugeirans á Íslandi á síðustu vikum og mánuðum. Þannig greindi Skúli Mogensen fjárrfestir frá því fyrir skömmu að hann ætlaði sér að stofna flugfélag og gekk fyrrverandi forstjóri Iceland Express til liðs við hann viðn litla hrifningu stjórnenda Iceland Express. DV greindi svo frá því fyrir skömmu að forsvarsmenn Iceland Express hafi látið starfsmenn fjármálafyrirtækisins bjóða Skúla að kaupa Iceland Express. Skúli þáði ekki það boð.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
