Önnur árás. Elsa Margrét heldur utan um Gabríel Víði sem segir fjóra stráka hafa haldið sér niðri. Mynd Gunnar Gunnarsson
Elsa Margrét Víðisdóttir segir að níu ára gamall sonur sinn, Gabríel Víðir, hafi komið heim úr skólanum útataður drullu og með bólgna vör. Elsa Margrét kom fram í DV á dögunum og sagði að sonur hennar væri fórnarlamb eineltis og að vanlíðanin vegna þess og margvíslegra geðraskana sem hann glímdi við væri orðin svo mikil að hann hefði beðið um lyf til þess að sofna að eilífu.
Í kjölfarið brugðust margir við og þau mæðgin fengu óvæntan stuðning úr hinum ýmsu áttum. Foreldrar barna tjáðu sig í kommentakerfi DV.is og sögðu að það væri ekki nóg að kenna börnunum sínum að leggja ekki aðra í einelti heldur yrði að segja þeim að það væri líka rangt að gera ekki neitt. Einn af þeim sem lögðu Gabríel í einelti hringdi líka og sagði: „Ég vil ekki að þú deyir,“ baðst afsökunar á framferði sínu og bauð Gabríel í afmælið sitt.
Þrátt fyrir það gengur lífið upp og niður og enn verða árekstrar. „Einn daginn kom Gabríel grátandi heim, allur í drullu og illa til hafður og með bólgna vör. Móðir mín tók á móti honum en hann sagði að honum hefði verið haldið niðri af fjórum strákum. Hann sagði að þeir hefðu nuddað honum upp úr moldinni og við það hefði vörin sprungið. Þeir hefðu einnig viðhaft ljótt orðbragð, sagt að hann ætti að koma sér úr þessum skóla og það væri gott að pabbi hans hefði dáið.“
Meira »


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
Ólafur flýgur framhjá Þóru
