Nýrækt er gjaldþrota og líklega þarf að afskrifa 5,7 milljarða skuldir félagsins. Gunnar Þór Gíslason, einn eigenda félagsins, gat ekki svarað því í mars í fyrra af hverju félagið hafi farið út í hlutabréfaviðskipti. Mynd Vilhelm Gunnarsson
Grænmetisfyrirtækið Nýrækt ehf. er gjaldþrota eftir að hafa tekið gríðarleg lán fyrir hlutabréfum í íslensku bönkunum. Fyrirtækið er meðal þeirra sem minnst var á í rannsóknarskýrslu Alþingis vegna bankahrunsins og eru viðskipti félagsins meðal þess sem til rannsóknar hefur verið hjá sérstökum saksóknara.
Kröfur í þrotabú félagsins námu 5,7 milljörðum króna. Arion banki var langstærsti kröfuhafinn í Nýrækt þegar það var tekið til gjaldþrotaskipta. 99 prósent krafna í búið voru frá bankanum.
Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður og skiptastjóri Nýræktar, vildi ekki staðfesta við DV að gögn hefðu verið send úr þrotabúinu til ákæruvaldsins eða sérstaks saksóknara. „Ég get ekkert tjáð mig um það,“ sagði hann. Engar eignir voru til í félaginu og er því líklegt að milljarðarnir sem Kaupþing lánaði Nýrækt verði afskrifaðir.
Meira »


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
