Kjarrás ehf, Félag Ólafs Laufdals og eiginkonu hans Kristínu Ketilsdóttur, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Mynd Björn Blöndal
Kjarrás ehf, Félag Ólafs Laufdals Jónassonar og eiginkonu hans Kristínu Ketilsdóttur, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Kröfur í félagið nema tæplega 200 milljónum króna en félagið fjárfesti í hlutabréfum í ýmsum fyrirtækjum fyrir hrun.
Ársreikningar félagsins fyrir árin 2008 og 2009 sína mikið tap á rekstri félagsins en 256 milljóna króna hagnaður var af rekstri þess árið 2007 og var arður greiddur til eigenda þess, Ólafs og eiginkonu hans, það ár. Heildarskuldir félagsins þegar mest var námu 800 milljónum króna en helstu eignir þess voru í bönkum og öðrum félögum sem komu illa undan efnahagshruninu haustið 2008.
Ólafur Laufdal er ekki þekktur fyrir hlutabréfaviðskipti en hann er einn þekktasti veitingamaður landsins. Hann hefur verið áberandi í skemmtanalífi landsmanna um margra áratuga skeið en hann rak meðal annars skemmtistaðinn Broadway í Mjódd, þar sem nú er rekið kvikmyndahús, auk þess að reka Hótel Íslands, sem síðar varð að Broadway, í Ármúla.
Meira »


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
