ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Skýrr kaupir Thor Data Center

Stærsti hluthafinn var fjárfestingarfélag Skúla Mogensen
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:41 › 16. nóvember 2011
Frá opnunarathöfn þegar Thor Data Center skrifaði undir samning við Opera Software.

Frá opnunarathöfn þegar Thor Data Center skrifaði undir samning við Opera Software. Mynd: DV

Skýrr hefur keypt 100 prósent hlutafjár í gagnaverinu Thor Data Center sem starfrækt er í Hafnarfirði. DV greindi frá því í lok síðasta mánaðar að unnið væri að því að selja fyrirtækið en stærsti hluthafi gagnaversins var fjárfestingarfélag Skúla Mogensen, Títan, með þriðjungshlut í fyrirtækinu.

Gagnaverið sérhæfir sig í gagnahýsingu og gagnavinnslu fyrir fyrirtæki og er norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software einn stærsti viðskiptavinur félagsins. Þar til nýlega var Thor Data Center eina gagnaverið á Íslandi.

Kaupverðið er trúnaðarmál en í tilkynningu frá Skýrr segir að fyrirtækið hafi lengi hugað að uppbyggingu gagnavers hér á landi enda séu sóknarfærin mikil á þessu sviði.

Í tilkynningu segir að Skýrr sé í dag norrænt upplýsingatæknifyrirtæki með 1.100 starfsmenn í fjórum löndum.

„Hjá Thor Data Center er frábært starfsfólk með mikla þekkingu á uppbyggingu og högun gagnavera. Verkefni gagnavera eins og Thor Data Center geta skapað þjóðinni miklar gjaldeyristekjur, sem hlýtur að vera mikilvægt atriði fyrir uppbyggingu atvinnulífsins alls. Við erum afar stolt af þessari góðu viðbót í Skýrr-fjölskylduna," segir Gestur Gestsson, forstjóri Skýrr í tilkynningu frá fyrirtækinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?