ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Kanadamenn byrja að nota plastseðla

Skipta út pappír fyrir plast
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:42 › 16. nóvember 2011

Á meðan mikið hefur verið rætt um það hér á landi undanfarið hvort besta leiðin í gjaldmiðlamálum Íslands sé að taka upp kanadadollar hafa Kanadamenn ákveðið að breyta honum. Frá og með þessari viku er komin í umferð ný útgáfa af 100 dollara seðlinum þar í landi sem framleiddur er úr plasti.

Bankar í Kanada hættu dreifingu á pappírsseðlunum á mánudag og síðan er gert ráð fyrir að skipta hinum seðlunum út á næstunni. Í mars á næsta ári verður 50 dollara pappírsseðlinum skipt út fyrir plast og svo koll af kolli niður í minnsta seðilinn, 5 dollara, sem á að vera kominn í gagnið árið 2013.

Seðlabanki Kanada segir nær ómögulegt að rífa nýju plastseðlana, það sé erfiðara að falsa þá og þá, skiljanlega, endist þeir mun betur en pappírsseðlar. Að auki séu þeir endurvinnanlegir.

Seðlabankastjóri Kanada segir að þrátt fyrir allt tal um dauða seðlanna í nútímahagkerfinu þá þurfi Kanadamenn gjaldmiðil sem þeir geti treyst.

Kanada er þó ekki fyrsta þjóðin til að skipta út pappír fyrir plast.. Ástralir hafa verið með plastseðla síðan síðan á níunda áratug síðustu aldar og alls nota 30 þjóðir annað en pappír í seðlana sína.

Hér fyrir ofan má sjá kynningarmyndband frá Seðlabanka Kanada um nýja plastseðilinn



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?