ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Bónusbrjálæði góðærisáranna snýr aftur

Fannie Mae og Freddie Mac vilja greiða tíu toppum 1,5 milljarða
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:30 › 16. nóvember 2011
Charles Haldeman hjá Freddie Mac og kollegi hans Michael Williams hjá Fannie Mae vilja ólmir umbuna æðstu stjórnendum fasteignalánafyrirtækjanna með bónusgreiðslum.

Charles Haldeman hjá Freddie Mac og kollegi hans Michael Williams hjá Fannie Mae vilja ólmir umbuna æðstu stjórnendum fasteignalánafyrirtækjanna með bónusgreiðslum. Mynd: Reuters

Æðstu stjórnendur bandarísku fasteignalánafyrirtækjanna Fannie Mae og Freddie Mac fóru með kunnuglegar ræður þegar þeir vörðu ákvarðanir fyrirtækjanna að greiða æðstu stjórnendum fyrirtækjanna tæplega 13 milljónir dala, eða sem nemur um 1,5 milljörðum króna, í bónusa.

Michael Williams hjá Fannie Mae og Charles Haldeman hjá Freddie Mac, héldu því báðir fram að bónusgreiðslukerfið væri réttlætanlegt til að fyrirtækin gætu haldið sínu besta starfsfólki og laðað hæfari starfskrafta til sín.

Fjármálanefnd fulltrúadeildar bandaríska þingsins hefur samþykkt frumvarp sem stöðvar bónusgreiðslurnar með 52 atkvæðum gegn 4 en fulltrúadeildin á enn eftir að greiða atkvæði um frumvarpið og þá hefur sambærilegt frumvarp verið lagt fram í öldungadeild bandaríska þingsins.

Báðum fyrirtækjum var bjargað af bandaríska ríkinu haustið 2008 og hafa þau þegið um 169 milljarða dala í fjárhagsaðstoð frá ríkinu síðan þá. Eru bandarísk stjórnvöld því lítt hrifin af áformum fyrirtækjanna að dæla einum og hálfum milljarði króna í tíu æðstu stjórnendur þeirra.

„Við þurfum að umbuna framkvæmdastjórum okkar og starfsfólki til að tryggja að við höldum okkar besta fólki,“ sagði Williams fyrir þingnefnd um málið. Samkvæmt frétt Reuters af málinu eru fulltrúar bæði demókrata og repúblikana yfir sig hneykslaðir yfir áformum fyrirtækjanna sem að öllu óbreyttu verða ekki að veruleika fái stjórnmálamenn eitthvað um málið að segja.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?