Players í Kópavogi hélt svokallað sóðakvöld í gær. Atburðurinn var afar umdeildur en gekk víst vonum framar að mati aðstandenda. Mynd: DV
„Frábært Dirty Night á Players í gær og allt gekk eins og í sögu,“ segir Mikael Nikulásson einn eigenda skemmtistaðarins Players í Kópavogi á Facebook-síðu sinni í dag.
Dirty Night-viðburðurinn vakti litla lukku meðal stjórnvalda í bænum en eins og fram hefur komið kærði jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogsbæjar auglýsingar fyrir viðburðinn til lögreglu. Var auglýsing fyrir viðburðinn talin niðurlægjandi fyrir konur og Kópavogsbæ þar sem sjá mátti klæðalitlar dömur dansa í búrum og gesti lepja áfengi úr nöflum fáklæddra meyja.
Þrátt fyrir fjaðrafokið í kringum sóðakvöldið svokallaða fór skemmtunin fram án vandkvæða og var víst margt um manninn. Og um velgengni kvöldsins hefur vertinn þetta að segja á Facebook-síðu sinni:
„Þakka femínistakellingum fyrir góðan auglýsingapakka og svo trúi ég nú ekki öðru en að bæjarstjóri og formaður bæjarráðs Kópavogs verði búnar að segja starfi sínu lausu fyrir morgundaginn enda greinilega með allt niðrum sig í sínu starfi!“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
Ólafur flýgur framhjá Þóru
