ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

FME kærir niðurstöðu sérstaks saksóknara

Sérstakur saksóknari felldi niður rannsókn á fjárfestingum lífeyrissjóða.
10:00 › 13. nóvember 2011
Fjármálaeftirlitið hefur kært þá niðurstöðu embættis sérstaks saksóknara að hætta rannsókninni til embættis ríkissaksóknara. Gunnar Andersen er forstjóri Fjármálaeftirlitsins.

Fjármálaeftirlitið hefur kært þá niðurstöðu embættis sérstaks saksóknara að hætta rannsókninni til embættis ríkissaksóknara. Gunnar Andersen er forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Mynd: DV/Eyþór Árnason

Fjármálaeftirlitið hefur kært þá niðurstöðu embættis sérstaks saksóknara að hætta rannsókn á fjárfestingum fimm lífeyrissjóða, sem voru í eignastýringu hjá gamla Landsbankanum, til embættis ríkissaksóknara. Þetta kemur fram í svari frá embætti sérstaks saksóknara við fyrirspurn DV um málið: „Ákvörðun embættis sérstaks saksóknara um að hætta rannsókn þess máls sem þú vísar til hefur verið kærð af hálfu FME til Ríkissaksóknara.“

Upplýsingagjöf talið ábótavant
Í lok september sendi Landsbankinn, arftaki gamla Landsbankans, frá sér fréttatilkynningu um að rannsókninni á málinu hefði verið hætt hjá sérstökum saksóknara. Fjármálaeftirlitið hefur nú tekið þá ákvörðun að kæra þessa niðurstöðu.

Líkt og fram kom í fréttatilkynningu Landsbankans var tilgangur rannsóknarinnar að kanna „… hvort stjórnendur og starfsmenn þeirra lífeyrissjóða sem til skoðunar voru, hafi á fyrri hluta árs 2008 farið út fyrir lagaramma um fjárfestingarákvarðanir og hvort upplýsingagjöf þar að lútandi til FME hafi verið ábótavant.“ Fjármálaeftirlitið hóf rannsóknina á málinu og sendi kæru til sérstaks saksóknara. Rannsóknin hafði staðið í á þriðja ár þegar henni var hætt...

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?