ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Sama útlit en talsvert öflugri

Engar útlitsbreytingar gerðar á milli útgáfu
Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
14:05 › 9. október 2011
  • Ýttu á myndina til að sjá hana stærri.

    Ýttu á myndina til að sjá hana stærri.

Margir aðdáendur iPhone og Apple urðu fyrir miklum vonbrigðum þegar Apple kynnti til sögunnar iPhone 4S en ekki iPhone 5. Mikil eftirvænting var meðal áhugamanna um snjallsíma vegna kynningar nýs forstjóra Apple, Tim Cook , sem fram fór í höfuðstöðvum Apple í Bandaríkjunum á þriðjudag. Engu að síður eru miklar breytingar frá fyrri iPhone 4 útgáfu í S-útgáfunni – þó að símarnir líti nær nákvæmlega eins út.

S-útgáfan af iPhone 4 verður talsvert öflugari en núverandi útgáfa. Símtækið er búið A5 dual core örgjörva. Það er samskonar örgjörvi og er notaður til að keyra iPad-spjaldtölvu fyrirtækisins, sem er talsvert stærra tæki en iPhone. Samkvæmt upplýsingum frá Apple mun S-útgáfan vera allt að tvöfalt hraðari en eldri útgáfan og verður myndvinnsla allt að sjö sinnum hraðari en síminn verður búinn nýjum þrívíddarhraðal. Það á þó eftir að staðfesta þessar tölur.

Myndavél símans var líka uppfærð og er hún 8 megapixla í S-útgáfunni samanborið við 5 megapixla myndavél í eldri útgáfunni. Þá getur S-útgáfan tekið upp myndbönd í 1080p hágæðaupplausn.

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?