Ljúfasta barn Bretlands fallið frá

„Harry var fyrirmynd barna og fullorðna“

Ellefu ára drengur, sem breska þjóðin hreifst af, lést af völdum heilaæxlis í morgun. Í fjögur ár hafði Harry Moseley barist við meinið en hann hafði legið meðvitundarlaus á barnasjúkrahúsinu í Birmingham síðan 10. ágúst síðastliðinn eftir að æxlið stækkaði um helming.

Á meðan hann barðist fyrir lífi sínu reyndi hann að hjálpa öðru fólki. Hann gerði það með því að búa til armbönd sem hann seldi. Hann náði að safna fimm hundruð þúsund pundum til styrktar krabbameinsrannsókna í Bretlandi.

Hann var nefndur „Ljúfasta barn Bretlands“ og var dáður af mönnum líkt og Gary Lineker, John Terry og Ben Shepherd.

Forsætisráðherra Breta, David Cameron , er einnig sagður hafa gengið með armband frá drengnum. Fjölskylda hans hefur heitið því að góðgerðastarfi Harrys verði haldið áfram undir merkjum, Help Harry Help Others.

Richard Taylor, frá Cancer Research Uk, sagði fráfall Harrys vera sorglegt. „Harry var fyrirmynd barna og fullorðna með því að vekja athygli á heilaæxli undir merkjum Help Harry Help Others. Einsamall safnaði hann 85 þúsund pundum með því að selja armböndin sín. Hann hjálpaði einnig Cancer UK að safna hundruð þúsunda punda með því að styðja okkar vinnu og ræða um sjúkdóm sinn. Það var ósk Harrys að allir Bretar myndu bera armbönd hans með stolti.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.