ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

iPhone 4S seldist upp í forsölu á 12 tímum

Vinsældir þrátt fyrir vonbrigði
Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
10:47 › 9. október 2011

Þrátt fyrir að margir hafi orðið fyrir vonbrigðum að Apple tilkynnti ekki um iPhone 5-síma á síðasta blaðamannafundi sínum heldur uppfærslu á iPhone 4, iPhone 4S, eru margir spenntir fyrir símanum. Það tók aðeins 12 klukkustundir að selja alla iPhone 4S-símana sem Apple bauð í forsölu. Þetta kemur fram á vef International Business Times.

Bandaríska símfyrirtækið AT&T , sem er meðal samstarfsfyrirtækja Apple um sölu og þjónustu við iPhone-síma í Bandaríkjunum, tók eitt og sér við meira en 200 þúsund pöntunum. Fjöldi manns hefur þá komið sér fyrir í röð fyrir utan Apple-búðina í New York í Bandaríkjunum þar sem þeir bíða eftir að geta keypt nýja símann.

Allar þessar pantanir á iPhone 4S þyða að nýja útgáfan er ein sú vinsælasta frá því að fyrsti iPhone-síminn kom á markað.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?