Indversk stjórnvöld hafa keypt 100 þúsund eintök af Aakash til að láta indverska nemendur hafa til afnota. Mynd Reuters
Breskt fyrirtæki hefur sett á markað það sem þeir kalla ódýrustu spjaldtölvu heims undir vörumerkinu Aakash. Tölvan kostar um það bil 7.000 krónur. Flestir Indverjar hafa ekki efni á tölvum á borð við iPad frá Apple eða GalaxyTab frá Samsung og er því næsta víst að þessi spjaldtölva eigi eftir að ná talsverðri markaðshlutdeild í Asíuríkinu.
„Þeir ríku hafa aðgang að tækniheiminum, en fátækir og venjulegt fólk hefur verið skilið eftir. Aakash ætlar að binda enda á þetta ójafnrétti í tækniheiminum,“ sagði Kapil Sibal, samskipta- og menntamálaráðherra Indlands, í samtali við Reuters-fréttastofuna.
Indverska ríkið hefur fest kaup á 100 þúsund eintökum af Aakash fyrir um 6.000 krónur á hvert tæki. Tækin eru smíðuð og sett saman í Indlandi en þau eru hönnuð í Bretlandi. Indversk stjórnvöld ætla að nota tækin í skólum landsins en nemendur fá afnot af tölvunum endurgjaldslaust.
Meira »


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Lífvænleg pláneta uppgötvuð utan okkar sólkerfis
Zuckerberg samdi einn við Instagram
Facebook kaupir Instagram á milljarð dala
Milljónir keyptu sér iPad 3
Facebook meira ávanabindandi en áfengi og tóbak
