Jón Ásgeir: „Mig langar ekki aftur í þetta líf“

Hefði átt að stoppa árið 2005

„Ég hef enga stórmennskudrauma,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamaður í opinskáu fjögurra síðna viðtali í DV í dag. Í viðtalinu segir hann að það hafi verið mistök að eiga banka og að halda áfram að fjárfesta á Íslandi. Hann játar að hafa misst sjónar á góðum gildum, teygt sig of langt og segir að hann hefði átt að segja stopp árið 2005. „Glamúrinn var ekki þarna,“ segir hann um leið og hann gerir upp við lúxuslífið sem hann þráir ekki lengur.

Sjálfur hyggur hann ekki á endurkomu í íslenskt viðskiptalíf. „Nei, ég er bara sáttur við það sem ég er að gera núna,“ segir hann brosandi. „Ég hef enga stórmennskudrauma. Mig langar ekki aftur í þetta líf. Það er ekki þess virði.“

Ítarlegt einkaviðtal við Jón Ásgeir Jóhannesson má lesa í DV í dag


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.