ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Microsoft má kaupa Skype fyrir milljarða

Kaup Microsoft á Skype samþykkt af Evrópusambandinu
Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
16:16 › 7. október 2011
Steve Ballmer, forstjóri Microsoft, og Tony Bates, forstjóri Skype.

Steve Ballmer, forstjóri Microsoft, og Tony Bates, forstjóri Skype. Mynd Reuters

Microsoft hefur fengið grænt ljós frá samkeppnisyfirvöldum Evrópusambandsins um að kaupa netsímfélagið Skype. Microsoft gerði 8,5 milljarða dala skuldbindandi tilboð í Skype fyrir nokkru síðan en bíða þurfti samþykkti samkeppnisyfirvalda áður en kaupin gátu gengið í gegn.

Skype býður upp á eitt vinsælasta netsímaforrit á markaðnum í dag en milljónir manna nota forrit fyrirtækisins til að tala sín á milli, endurgjaldslaust, í gegnum netið. Með kaupunum hefur Microsoft styrkt stöðu sína sem leiðandi afl á sviði tækniþróunar en fyrirtækið hefur í raun keypt margra ára þekkingu starfsmanna Skype.

Skype verður gert að sérstakri deild innan Microsoft sem hefur átt undir högg að sækja í samkeppni sinni við Google og önnur fyrirtæki. Vonast stjórnendur Microsoft væntanlega að með kaupunum nái Microsoft aftur öruggri forystu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?