Tveir kettlingar, læður, fundust nær dauða en lífi í yfirgefinni námsmannaíbúð í Hafnarfirði þann 21. september síðastliðinn. Það var starfsmaður byggingarfélags sem fann kettlingana þegar hann kom til að vinna við íbúðina.
Kattarsaur á víð og dreif
Annar kattanna var aðframkominn þegar hann fannst en hann lá á gólfinu máttvana og hreyfingarlaus og var í fyrstu talinn dauður. Tilviljun ein réð því að kettirnir fundust, en íbúðin hafði verið framleigð og enginn veit með vissu hversu lengi kettirnir voru einir án matar og drykkjar eða hver það var sem skildi þá eftir. Í íbúðinni var engin matar- eða vatnsskál en þar var þó lokaður poki af kattarmat sem á ummerkjum mátti sjá að kettirnir höfðu klórað í, en án árangurs. Kattasaur var á víð og dreif um íbúðina og mjólkurferna sem skilin var eftir af fyrrverandi leigjanda var dagsett 8. júlí. Því virðist sem lítill umgangur hafi verið um íbúðina og kettirnir vanræktir.
Voru vannærðar og óframfærnar
Samkvæmt upplýsingum DV hringdi starfsmaður byggingarfélagsins á lögregluna og tilkynnti um illa meðferð á dýrum, en lögð hefur verið fram kæra og málið verður rannsakað af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hann fór eftir það með kettina í athvarfið í Kattholti þar sem starfsmenn hlúðu að þeim.


Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi