ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Snarpir skjálftar í Mýrdalsjökli

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:01 › 5. október 2011
Sigketill á Mýrdalsjökli

Sigketill á Mýrdalsjökli Mynd Landhelgisgæslan

Tvær snarpar jarðskjálftahrinur urðu í Mýrdalsjökli í nótt, sú fyrri rétt fyrir klukkan þrjú í nótt og önnur minni upp úr klukkan fjögur. Stærsti skjálftinn í hrinunum mældist rúmlega þrír að stærð. Síðan hefur verið nokkur skjálftavirkni og eftirskjálftar en þeir virðast vera að fjara út. Þetta er þó líklega stærsta jarðskjálftahrinan sem hefur orðið á svæðinu í ár.

Allt að sjötíu jarðskjálftar hafa mælst í Mýrdalsjökli frá miðnætti. Hrinan mun þó ekki vera undanfari eldgoss. Nokkur skjálftavirkni hefur verið undanfarið í Mýrdalsjökli.

Á heimasíðu Veðurstofunnar er hægt að fylgjast með skjálftavirkni í Mýrdalsjökli- Mýrdalsjökull - jarðskjálftar síðustu 48 klst.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?