Margir gátu ekki leynt vonbrigðum sínum með að Apple hefði ekki kynnt iPhone 5 til sögunnar í gær heldur aðeins uppfærða útgáfu af iPhone 4. Hlutabréfaverð í Apple féll eftir kynningu forstjórans í gær en nú stendur Apple jafnvel frammi fyrir enn stærra vandamáli.
Raftækjarisinn Samsung greindi nefnilega frá því í dag að fyrirtækið hefði farið fram á lögbann á sölu iPhone 4S í París og Mílanó. Samsung sakar Apple um einkaleyfisbrot en stefnur hafa gengið milli fyrirtækjanna undanfarna mánuði þar sem hvort fyrirtæki sakar hitt um þjófnað.
Samsung gerir sérstaklega athugasemd við meintan þjófnað Apple á því sem á fagmáli kallast WCDMA-staðall- (Wideband Code Division Multiple Access)- í iPhone 4S.
„Apple heldur áfram að brjóta vísvitandi gegn okkur og njóta góðs af tækninýjungum okkar og hugverkum,“ segir í tilkynningu Samsung þar sem því var einnig hótað að fyrirtækið muni verja hugverk sín með öllum tiltækum ráðum.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Lífvænleg pláneta uppgötvuð utan okkar sólkerfis
Zuckerberg samdi einn við Instagram
Facebook kaupir Instagram á milljarð dala
Milljónir keyptu sér iPad 3
Facebook meira ávanabindandi en áfengi og tóbak
