Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
16:24 › 5. október 2011
Fimm mánuðum eftir að Harpa opnaði með formlegum hætti hafa 350 þúsund manns heimsótt húsið.
Talið er í húsinu alla daga auk þess sem þessar tölur miða við alla þá sem sótt hafa viðburði í húsinu. Á sama tíma hefur sala á áskriftarkortum hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands aukist um 70 prósent á milli ára en hljómsveitin hefur fast aðsetur í húsinu.
Í tilkynningu frá stjórnendum Hörpu segir að þessar tölur séu framar björtustu vonum og að aðsóknin lofi góðu um framhaldið.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi