Ætluðu að myrða Karzai

Lífvörður, prófessor og stúdentar ætluðu að drepa forsetann

Yfirmenn afgönsku leyniþjónustunnar segjast hafa komið í veg fyrir morðtilræði á Hamid Karzai, forseta Afganistan.

Sex manns voru handteknir í Kabúl vegna málsins og tengjast þeir að sögn leyniþjónustunnar Al-Kaída hryðjuverkasamtökunum auk skæruliðasamtökunum Haqqani.

Einn hinn handteknu starfaði sem lífvörður forsetans, þrír voru háskólanemar og einn háskólaprófessor var einnig í hópnum samkvæmt talsmanni leyniþjónustunnar.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.