Tim Cook var engu að síður afar stoltur af nýja símanum þrátt fyrir að margir klóri sér í höfðinu eftir kynninguna í dag. Mynd: Reuters
Tim Cook, forstjóri Apple, afhjúpaði í dag nýjan iPhone-síma frá fyrirtækinu sem beðið hafði verið með mikilli eftirvæntingu. Raunar héldu margir að Apple-risinn myndi afhjúpa iPhone 5 en á því verður einhver bið að því er virðist.
iPhone 4S lítur nákvæmlega eins og út iPhone 4 en er með tvöfald hraðvirkari örgjöfa, A5-örgjöfanum sem finna má í iPad 2, þá státar iPhone 4S af betri rafhlöðu og myndavél.
Blaðamaður New York Times sem lýsti kynningunni í beinni á netinu frá höfuðstöðvum Apple í dag hafði á orði að margir fjárfestar hafi virst afar vonsviknir eftir afhjúpunina. Þá bætti hann við að hlutabréf í Apple hefðu fallið um tæp 3 prósent.
iPhone 4S kemur á markað í Bandaríkjunum þann 14. október næstkomandi.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Lífvænleg pláneta uppgötvuð utan okkar sólkerfis
Zuckerberg samdi einn við Instagram
Facebook kaupir Instagram á milljarð dala
Milljónir keyptu sér iPad 3
Facebook meira ávanabindandi en áfengi og tóbak
