Sími og tölvupóstur forstjórans skoðaður

Eftirlit með Matthíasi Imsland og Mario Fulgoni

Mario Fulgoni, fyrrverandi forstjóri breska flugfélagsins Astraeus, lenti í því eftir að hann lét af störfum hjá Astraeus að fylgst var með farsímanotkun hans og tölvupóstur hans skoðaður samkvæmt heimildum DV. Astraeus er í eigu Pálma Haraldssonar, eiganda ferðaskrifstofunnar Iceland Express, og á farþegaþoturnar sem notaðar eru í áætlunarflugi Iceland Express til og frá Íslandi. Heimildir DV herma að Fulgoni ætli sér að hefja flugtengdan rekstur með tíð og tíma.

Fulgoni hætti hjá félaginu um mánaðamótin ágúst-september eftir að hafa sagt upp störfum nokkru áður. Hann er á uppsagnarfresti hjá Astraeus en stýrir því ekki út uppsagnarfrestinn. Fyrrverandi forstjóri Astraeus, Hugh Parry, sem Fulgoni tók við starfinu af árið 2008, er sestur aftur í forstjórastól félagsins.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.