Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
10:07 › 31. október 2011
Aldrei fyrr hafa jafn margir notendur heimsótt DV.is og í liðinni viku samkvæmt samræmdri vefmælingu Modernus sem birt er í dag.
Alls heimsóttu 200.885 notendur DV.is og var þar með gamla aðsóknarmetið sem sett var fyrir viku síðan slegið rækilega. Þá heimsóttu 192.626 notendur DV.is.
Gríðarleg aukning hefur verið á fjölda heimsókna á DV.is en til samanburðar má geta þess að í sömu viku í fyrra heimsóttu tæplega 160 þúsund notendur fréttasíðu DV.
Flettingar á vefnum í nýliðinni viku voru 4,82 milljónir og rétt tæplega milljón innlit.
DV.is er sem fyrr þriðji mest sótti og lesni vefur landsins, á eftir vísi.is og mbl.is sem er mest lesinn, samkvæmt mælingu Modernus.

Hemmi Gunn fallinn frá