Tveir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um aðild að innflutningi á umtalsverðu magni af fíkniefnum og sterum. Tveir menn hafa verið handteknir vegna málsins. Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 11. nóvember en þann 10. október var karlmaður á sextugsaldri handtekinn vegna málsins og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 8. nóvember.
Í fréttum Stöðvar 2 var greint frá því að lögreglan hefði fyrr í mánuðinum lagt hald á sendingu í gámi frá Hollandi þar sem e-pillur, kókaín, amfetamín og sterar fundust. Sendingin mun hafa verið stíluð á heildsölu í Reykjavík og var starfsmaður hennar handtekinn.
Yngri maðurinn sem handtekinn var í fyrrinótt var í Leifsstöð og var þá að koma til landsins. Hann hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.
Rannsókn málsins mun hafa staðið yfir í alllangan tíma og hefur verið unnin í samvinnu við tollgæsluna. Um er að ræða umfangsmesta fíkniefnamál ársins á Íslandi.
Sjá einnig:

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013