Í leikreglum borðspilsins Mónópólí er gert ráð fyrir því að spilarar geti verið sendir beint í fangelsi og þurfi að dúsa þar á meðan aðrir spilarar fá að gera. Aldrei áður hefur þetta þó verið eins bókstaflegt og í tilfelli Lauru Chavez, sextugrar konu frá Santa Fe í Mexíkó. Chavez var send beint í fangelsi eftir að hafa tekið upp hníf í miðju borðspili og stungið mótspilara sinn, sem einnig var kærastinn hennar. Ástæðuna fyrir árásinni má rekja til deilna þeirra á meðan þau spiluðu borðspilið fræga.
Lögreglan segir að fórnarlambið, 48 ára karlmaður, hafi verið stunginn í kviðinn með eldhúshníf og hann hafi misst mikið blóð í kjölfarið.
Hin tapsára sextuga kona lét sér það ekki nægja, heldur tók hún einnig vínflösku og mölbraut hana á höfði kærastans. Chavez taldi víst öruggt að kærastinn hennar hefði svindlað í Mónópólí.
Bæði árásarkonan og fórnarlamb hennar voru undir nokkrum áhrifum áfengis þegar árásin átti sér stað, en 10 ára sonarsonur hennar var að spila með þeim. Hann varð vitni að rifrildi sem upphófst í miðju spili. Hann fór hins vegar sem betur fer í háttinn og var í fastasvefni þegar amma hans gekk af göflunum með þessum hörmulegu afleiðingum.
Hún á yfir höfði sér þungan fangelsisdóm fyrir stórhættulega líkamsárás og fyrir að sýna lögreglumönnum mótþróa við handtöku.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013