Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
16:43 › 3. október 2011
Beinar tekjur ríkissjóðs af sölu tóbaks námu 6,8 milljörðum króna árið 2010. Árið 2009 námu tekjurnar 6,5 milljörðum króna og árið 2008 5,6 milljörðum króna. Tekjuaukningin nemur því 17,3 prósentum frá ársbyrjun 2008 til ársloka 2010.
Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Margrétar Tryggvadóttur um sölu tóbaks. Beinar tekjur af tóbakssölu skiptast í tóbaksgjald og virðisaukagjald. Tekjur ríkissjóðs af þessu gjaldi námu tæpum 4,7 milljörðum króna árið 2010 en af virðisaukaskatti rúmum 2,1 milljörðum.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013