Árni Þór Sigurðarson segir að hann átti sig ekki alveg því hvað hafi gerst á laugardaginn þegar mótmælandi kastaði eggi í höfuð hans, enda hafi hlutirnir gerst hratt. Eggið hæfði hann í gagnaugað og féll þingmaðurinn við. Hann segir að hann hafi einfaldlega misst jafnvægið. „Ég ætlaði að reyna að koma undir mig fótunum, en náði því ekki,“ segir Árni brattur.
„Þetta er allt í lagi held ég. Ég er með einhver svona ónot, en ég held að það sé ekki neitt,“ segir Árni spurður um líðan sína í dag og sagði málið ekki vera alvarlegt.
Í samtali við DV.is á laugardaginn sagði Árni það slæmt ef mótmælin snérust um að skemma og meiða, þannig myndu þau missa marks.
„Auðvitað hafa allir rétt á að mótmæla við stjórnvöld og koma sínum málstað á framfæri. Við hlustum að sjálfsögðu á það og erum ekki ónæm fyrir þeirri rökræðu. Mér finnst mjög slæmt þegar þetta er komið út í að skemma og meiða. Þá missa mótmælin marks og menn eru ekki að gera sínum málstað greiða með því,“ sagði Árni Þór.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum