ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 9m/s S

Hakkarar brjótast inn á Facebook 600,000 sinnum á dag

Ferð þú nógu varlega með lykilorðið þitt?
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:35 › 29. október 2011

Alls reyna 600,000 hakkarar að brjótast inn á Facebook-síður einstaklinga daglega til þess að komast yfir myndir og persónulegar upplýsingar notenda og skilaboð þeirra. Þetta er í fyrsta sinn sem Facebook gefur upplýsingar um það hversu oft kerfi þeirra verður fyrir árás. Mikilvægi þess að nota flókin lykilorð og breyta þeim reglulega er því gríðarlegt, fyrir utan það að velja vini sína á samfélagsvefnum gaumgæfilega.

„Þegar að hakkari kemst inn á síðu einstaklings getur hann gert það sem hann vill og notað persónulegar upplýsingar á einu augabragði,“ segir Graham Cluley ráðgjafi hjá tölvuöryggisfyrirtækinu Sophos. Aðalástæðan fyrir því að þeir reyna að komast inn á síður annarra er svo hægt sé að nota hana til að senda svikapósta og fölsk tilboð til annarra. Meðal annars til þess að selja illa fengin varning eða græða á því peninga.

En Facebook notendur gera hökkurum einnig auðvelt fyrir. Með því að nota sama lykilorðið á allar síður; tölvupóst, samfélagssíður og heimabanka, er verið að auka hættuna á því að einhver geti stolið öllum persónulegum upplýsingum um þig.
Því er mikilvægt að fólk gefi aldrei upp lykilorð sitt nema þegar það skráir sig inn á Facebook og falli ekki fyrir því þegar falskar síður reyna að biðja þig um lykilorð. Þar að auki að nota flókin lykilorð og nota nýtt orð fyrir hverja síðu sem þú notar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?