ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.6° 10m/s S

Easy Jet stefnir á flug til Íslands

Blandar sér í flugbaráttuna um landið
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:26 › 28. október 2011
Easy Jet er með áætlunarflug til flestra Evrópulanda og er ljóst að ef verður af áætlunum félagsins að fljúga til Íslands muni það auka verulega á samkeppni á flugmarkaði hér á landi.

Easy Jet er með áætlunarflug til flestra Evrópulanda og er ljóst að ef verður af áætlunum félagsins að fljúga til Íslands muni það auka verulega á samkeppni á flugmarkaði hér á landi.

  • Áfangastaðir EasyJet. Ýttu á myndina til að sjá hana stærri.

    Áfangastaðir EasyJet. Ýttu á myndina til að sjá hana stærri.

Breska flugfélagið Easy Jet áformar að fljúga til Íslands næsta sumar. Fyrst um sinn mun félagið fljúga á milli London og Keflavíkur en líklegt þykir að kvíarnar verði færðar út smátt og smátt. Félagið er eitt af stærstu lággjaldaflugfélögum heims í dag.

Rifja má upp að Fl-Group, sem stjórnað var af útrásarvíkingnum Hannesi Smárasyni, átti á sínum tíma um fimmtungshlut í félaginu, áður en allt fór á hliðina. Hannes kemur þó hvergi nærri í þetta skiptið.

Í dag flýgur félagið til um 118 landa í Evrópu, Norður-Afríku og Vestur-Asíu en félagið rekur um 500 flugleiðir. Flugfélagið á heimahöfn á Luton-flugvelli í Bretlandi en flugfélagið er breskt. Það var stofnað árið 1995 af Sir Stelios Haji-Ioannou en félagið hefur verið leiðandi á markaði lággjaldaflugfélaga. Félagði er næststærsta lággjaldaflugfélag í heimi á eftir írska félaginu Ryanair.

Gangi áform Easy Jet eftir mun flugstríðið um Ísland harðna enn frekar en flugfélag Skúla Mogensen og Matthíasar Imsland mun hefja áætlunarflug næsta sumar. Ljóst er að sá tími að flugfélögin Iceland Express og Icelandair sitji ein að kjötkötlunum er liðinn.

Myndband um Easy Jet sem gert var árið 2008



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?