Tæmdi starfsmannasjóð og stakk af

Starfsmaður Norðuráls stal hundruð þúsunda af samstarfsfélögum

Starfsmaður Norðuráls á Grundartanga varð fyrir nokkru uppvís að því að stela hundruð þúsunda króna úr starfsmannasjóði vaktarinnar sem hann starfaði á.

Samkvæmt heimildum DV höfðu starfsmenn tiltekinnar vaktar safnað í myndarlegan starfsmannasjóð líkt og tíðkast innan fyrirtækisins. Sjóðurinn var kominn í um 600 þúsund krónur þegar maðurinn, sem þá var orðinn svokallaður liðsstjóri á vaktinni, lét greipar sópa á reikningi samstarfsmanna sinn á vaktinni og stakk í eigin vasa.

Ágúst Hafberg, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og samskipta hjá Norðuráli,, staðfestir í samtali við DV að mál af þessu tagi hafi komið upp á þessu ári hjá Norðuráli. Hann vill þó ekki tjá sig um einstök mál er varða starfsfólk álfyrirtækisins.

Heimildir DV herma að maðurinn hafi lent í óreglu og eftir að hann féll á lyfjaprófi innan fyrirtækisins var honum sagt upp störfum. Í kjölfarið kom í ljós að umtalsverðar fjárhæðir vantaði í starfsmannasjóð viðkomandi vaktar.

Síðan málið kom upp fyrir um nokkrum mánuðum síðan hefur ekkert gengið að endurheimta peningana enda lítið sem ekkert spurst til mannsins síðan og jafnvel talið að hann sé farinn úr landi. Starfsmannasjóðir sem þessir eru á ábyrgð starfsmannanna sjálfra en Norðurál hefur hins vegar lagt viðkomandi starfsmönnum lið.

„Norðurál hefur aðstoðað viðkomandi starfsmenn við úrlausn málsins, meðal annars með því að útvega þeim aðstoð lögfræðinga til að annast málarekstur fyrir þá,“ segir Ágúst Hafberg í samtali við DV. Hann hafði þó ekki upplýsingar um það hvort búið væri að kæra þjófnaðinn til lögreglu.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.