Fátækur Indverji er raunverulegur Slumdog Millionaire

Fyrsti maðurinn á Indlandi til að vinna indverska „Viltu vinna milljón?“

Fátækum ríkisstarfsmanni á Indlandi er í dag líkt við aðalsögupersónuna úr metsölubókinni Slumdog Millionaire eftir að hann sigraði í indversku útgáfunni af Viltu vinna milljón?

Þetta er talsvert afrek því Sushil Kumar er fyrsti maðurinn í sögu Indlands til að vinna fyrstu verðlaun í þáttunum, eða 50 milljónir rúpía. Kumar, sem kemur frá bænum Motihari í Bihar einu fátækasta héraði Indlands, grét þegar þáttastjórnandinn afhenti honum sigurverðlaunin fyrir að svara hverri einustu spurningu rétt.

Hinn 26 ára gamli Kumar þénaði áður sem nemur um 14 þúsund krónum á mánuði sem skrifstofustarfsmaður hjá hinu opinbera.

Hann var of fátækur til að kaupa sér sjónvarp og þurfti því alltaf að horfa á þættina vinsælu hjá nágrönnum sínum en eftir að þeir veittu því athygli að hann vissi oftar en ekki svörin við spurningunum hvöttu þeir hann til að taka þátt. Kumar komst síðan loks í sviðsljósið á þriðjudaginn var og stóð sig eins og hetja.

Kumar, sem er nýkvæntur, segir að hann muni nota vinninginn til að kaupa hús handa eiginkonu sinni, greiða skuldir fjölskyldu sinnar, aðstoða bróður sinn við að stofna fyrirtæki og taka stöðupróf innan stjórnsýslukerfisins í Indlandi. Ef hann nær því prófi gæti það tryggt honum stöðuhækkun og meira starfsöryggi.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.