ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.6° 10m/s S

Facebook mun hýsa gögnin þín í Svíþjóð

Fyrsta netþjónabúið utan Bandaríkjanna verður reist í kuldanum í Lulea
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:18 › 27. október 2011
Tom Furlong kynnir netþjónabúið í Lulea í Svíþjóð í dag. (Mynd: Reuters)

Tom Furlong kynnir netþjónabúið í Lulea í Svíþjóð í dag. (Mynd: Reuters)

  • Hér er Lulea staðsett í Svíðþjóð. (Mynd: Wikipedia)

    Hér er Lulea staðsett í Svíðþjóð. (Mynd: Wikipedia)

Forsvarsmenn Facebook hafa greint frá því að fyrsta netþjónabú fyrirtækisins utan Bandaríkjanna verði staðsett í Lulea í Svíþjóð. Búinu er ætlað að auka hraða síðunnar í Evrópu en skilyrðin á svæðinu þykja fullkomin þar sem átta mánuði ársins mun kuldinn þar kæla netþjóna Facebook. Þá er nóg af orku á svæðinu þar sem öflug virkjun er í næsta nágrenni.

„Það eru fleiri Facebook-notendur utan Bandaríkjanna en innan þeirra. Það var kominn tími til að við færum í útrás til Evrópu,“ sagði Tom Furlong, einn af yfirmönnum Facebook, þegar áformin voru kynnt í Svíþjóð í dag. Hann lofaði að hraði síðunnar yrði mun betri í Evrópu þegar netþjónabúið verður komið í gagnið.

Facebook er þegar með risavaxin netþjónabú í Kaliforníu, Virginíu, Oregon og annað í byggingu í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum.
Áætlanir gera ráð fyrir að netþjónabúið í Lulea verði klárt árið 2014 en byggingin verður 28 þúsund fermetrar.

Hið sænska Facebook-bú mun sem fyrr segir nýta köld veðurskilyrði á svæðinu til að kæla netþjóna sína allt að átta mánuði á ári á meðan mörg sambærileg bú styðjast við orkufrek kælikerfi. Hitinn frá netþjónastæðunum innandyra mun síðan aftur vera notaður til að hita upp skrifstofur byggingarinnar.

Facebook hefur ekki gefið upp hvað fjárfestingin muni kosta en yfirvöld í Lulea hafa áður gert ráð fyrir fjárfestingu upp á 5 milljarða sænskra króna.

Svo virðist sem bandarísk stórnetfyrirtæki líti í auknum mæli til Skandinavíu fyrir netþjónabú sín því árið 2009 keypti Google pappírsmyllu í Hamina í Finnlandi og breytti í netþjónabú. Þar er sjór notaður til að kæla græjurnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?