„Hann bauðst ekki beinlínis til að skjóta mig en hann varaði mig við,“ segir Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna. Björn Valur greindi frá því á bloggsíðu sinni í gærkvöldi að hann hefði fengið líflátshótun frá framkvæmdastjóra í stóru fyrirtæki.
Í samtali við DV segist Björn Valur ekki vilja gefa upp hver það var sem hótaði honum. „Nei, ég ætla ekkert að gera það. Ég ætla láta það eiga sig,“ segir hann og bætir við að um mánuður sé síðan hann fékk hótunina sem barst í gegnum síma.
Björn Valur tók það fram í pistli sínum að fyrirtækið sem maðurinn starfar hjá sé innan vébanda Samtaka iðnaðarins og sagði Björn að viðkomandi hefði verið fullur heiftar út í stjórnvöld „eins og títt er um marga vel stæða og sterkefnaða menn“ eins og hann orðaði það.
„Þessi sagðist telja rétt að ég (og reyndar fleiri) fengi skot í hnakkann, rétt eins og Quisling forðum. Ég ætti að hafa það hugfast hvernig fór fyrir þeim norska, sagði framkvæmdastjórinn, það gæti auðveldlega hent fleiri, hótaði hann,“ sagði Björn á bloggsíðu sinni.
Í samtali við DV segir Björn að ákveðinn blæbrigðamunur sé á þeim sem eru sterkefnaðir og þeim sem minna hafa á milli handanna. „Þeim virðist svíða meira fyrir þúsundkallinn sem þeir missa en húsið sem aðrir missa,“ segir hann. Aðspurður segir Björn að í fyrirtækinu sem maðurinn starfar hjá séu nokkur hundruð starfsmenn.
Aðspurður hvort hann telji að einhver alvara hafi legið að baki segir Björn: „Maður veit það ekki, en manni er sagt að það eigi að taka svona hluti alvarlega.“ Hann ákvað hins vegar að fara ekki lengra með málið og tilkynna það ekki til lögreglu.
Björn segir að hann hafi aldrei áður fengið slíka hótun þó þingmönnum berist stundum tölvupóstar frá fólki þar sem öllu illu er hótað. Spurður hvort hann telji að þingmenn hafi ástæðu til að óttast um öryggi sitt segir hann:
„Ég veit ekki hvað skal segja. Ég hef ekkert orðið var við það nema þegar maður lætur skipulega kasta í sig eggjum. Sjálfsagt er einhver stemning fyrir því að pönkast í þingmönnum,“ segir hann og ítrekar það sem hann sagði fyrr. Þeir sem mest hafa séu grimmastir.
„Ég hef miklu meiri samúð með þeim sem eru atvinnulausir og töpuðu öllum sínum eigum heldur en svona gæja sem er mest brjálaður yfir því að það sé ekki sama gengi að stjórna landinu og áður. Ég hef enga samúð með honum.“

Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi