Þremur hjálparstarfsmönnum, sem hafa unnið að því að gera jarðsprengjur óvirkar í norðurhluta Sómalíu, hefur verið rænt. Um er að ræða 32 ára bandaríska konu, 60 ára gamlan danskan karlmann og sómalskan samstarfsmann þeirra. Hjálparstarfsmennirnir voru á leið sinni út á flugvöll þegar vopnaðir menn réðust á bílalest sem þeir óku í.
„Við munum koma fram við þau af mannsemd og virðingu. Markmið okkar snýr eingöngu að því að fá greitt lausnargjald, ekki að skaða þau,“ hefur AP-fréttastofan eftir talsmanni mannræningjanna. Mannræningjarnir eru sagðir vera sjóræningjar sem hafa snúið sér að fórnarlömum á föstu landi en talsmaður þeirra er sagður hafa sagt að þeir hefðu ráðist til atlögu á landi þar sem erfiðara væri orðið að ræna skip.
Hjálparstarfsmennirnir vinna allir fyrir dönsk hjálparsamtök sem vinna að því að gera jarðsprengjur og önnur hergögn á átakasvæðum í Afríku og Mið-Austurlöndum óvirk.

Hemmi Gunn fallinn frá