„Svarið við því er einfalt nei,“ sagði Svavar Halldórsson, fréttamaður RÚV, en á þriðjudag fór fram aðalmeðferð í máli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar gegn Svavari. Svavar var spurður að því hvort hann gæti gefið upp nöfn heimildarmanna sinna sem hann byggði fréttina sem málið snýr að. Jón Ásgeir stefndi Svavari fyrir meiðyrði, en stefnan snýr að ummælum sem komu fram í frétt um Pace Associtates og lánaviðskipti þess við Fons, sem flutt var í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í desember í fyrra.
Svavar er staddur í Washington DC í Bandaríkjunum og gaf því vitnisburð símleiðis. Það var eldsnemma morguns í Washington þegar Svavar þurfti að ræsa sig en hann gaf vitnisburð sinn um klukkan níu að íslenskum tíma, sem er klukkan fimm að staðartíma í Washington. Hann sagði það þó vera einfalt, að það kæmi ekki til greina að leysa frá skjóðunni um heimildarmenn sína. Þá teldi hann heimildarmennina vera mjög trúverðuga og kvaðst ekki hafa ástæðu til að efast um orð þeirra.
DV greindi fyrst frá málinu í desember en stefnuvottur knúði dyra á heimili Svavars í Hafnarfirði daginn fyrir Þorláksmessu og birti honum stefnuna. Jón Ásgeir krefst þess meðal annars þess að fá greiddar þrjár milljónir króna í miskabætur. Svavar hefur þegar unnið meiðyrðamál tengt sömu frétt á móti Pálma Haraldssyni í Fons. Svavar segir að verði kröfur Jóns Ásgeirs teknar til greina sé verið að draga úr opinberri umræðu og aðeins sýkna tryggi að tjáningarfrelsi hans sé óskert.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013