ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.6° 10m/s S

Evrópusambandið nýtur meira trausts en ríkisstjórnin og Alþingi

Stjórnarandstaðan nýtur minna trausts en ríkisstjórnin
Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
11:38 › 26. október 2011

Lögreglan nýtur langmests traust Íslendinga á meðal helstu stofnanna samfélagsins. Rúmlega 80 prósent þjóðarinnar ber traust til lögreglunnar. Háskóli Íslands er sú stofnun sem kemur næst á eftir með 68,6 prósenta traust og Ríkisútvarpið þar á eftir með 59,7 prósenta traust. Bankakerfið, Fjármáleftirlitið og Alþingi njóta minnsts traust í samfélaginu.

Þetta kemur fram í niðurstöðum skoðanakönnunnar sem MMR gerði dagana 6.– 10. október síðastliðna. Athyglisvert er að Evrópusambandið nýtur talsvert meira trausts en Alþingi Íslendinga. Þá nýtur sambandið einnig meira trausts en Seðlabankinn, fjölmiðlar og lífeyrissjóðirnir. Einnig vekur athygli að stjórnarandstaðan nýtur minna trausts en ríkisstjórnin, en ríkisstjórnin nýtur trausts 14,1 prósent þjóðarinnar.

Traust til Landsvirkjunar eykst líka talsvert á milli kannanna og mælist það 34,2 prósent. Í síðustu könnun sem MMR gerði á trausti Íslendinga til stofnanna samfélagsins treystu 24,7 prósent Landsvirkjun. Hægt er að skoða niðurstöður könnunarinnar í heild sinni hér.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?