Rúmlega 78 prósent þjóðarinnar bera mikið traust til Landhelgisgæslunnar. Stofnunin nýtur afgerandi trausts á meðal helstu stofnanna á sviði réttarfars og dómstóla hér á landi. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunnar MMR sem gerð var á dögunum. Næst á eftir Landhelgisgæslunni kemur embætti sérstaks saksóknara, en embættið nýtur trausts 47,4 prósenta þjóðarinnar.
Athygli vekur að dómskerfið í heild sinni nýtur aðeins 30,4 prósenta trausts. Hæstiréttur nýtur trausts 37,8 prósenta þjóðarinnar á meðan héraðsdómstólarnir njóta um 34,4 prósenta trausts. Landsdómur er á botni listans en aðeins um 16,4 prósent Íslendinga treysta Landsdómi, sem kallaður var í fyrsta sinn saman á síðasta ári.
Niðurstöður könnunarinnar má sjá í heild sinni hér.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Geir Haarde til liðs við lögmannsstofu
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
Ólafur flýgur framhjá Þóru
