Lögreglan rannsakar hvort ökumaður gámabifreiðar, sem ók í veg fyrir hjólreiðamann síðastliðinn miðvikudag, hafi ekið gegn innakstursbanni. Rannsókn lögreglunnar snýr einnig að því hvort ökumaðurinn hafi gerst brotlegur við hegningarlög með því að valda öðrum tjóni á líkama eða heilbrigði með gáleysi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
„Rannsakað verður jafnframt hvort vinnureglur og jafnvel fyrirmæli yfirmanna fyrirtækis sem þarna er með aðstöðu, hafi gert ráð fyrir innakstri á nefndum stað. Í öllum tilvikum verður kannað hvort um refsiábyrgð geti verið að ræða,“ segir meðal annars í tilkynningunni.
Hjólreiðarmaðurinn var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir slysið en slökkviliðsmenn voru kallaðir til til að klippa hjólið utan af manninum. Manninum er enn haldið sofandi í öndunarvél samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæsludeild Landspítalans.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013