Jón Ármann Steinsson fluttist ásamt fjölskyldu sinni til Kaliforníu fyrir 13 árum. Þau ákváðu fyrir stuttu að snúa aftur til Íslands en hafa komist að því að það er meira en að segja það að flytja aftur til landins.
Það reyndist þó vera þrautinni þyngra að snúa aftur til landsins því íslenska kerfið gerir hreinlega ekki ráð fyrir „snúbúum“ eins og einn starfsmaður sem Jón Ármann leitaði aðstoðar hjá kallaði fjölskylduna.
„Snúbúar“ eru því íslenskir ríkisborgarar sem snúa aftur til Íslands eftir dvöl erlendis. Sem snúbúar eiga Jón Ármann og fjölskylda hans ekki rétt á heilbrigðisþjónustu fyrr en eftir sex mánuði á Íslandi. Þau eru engu að síður öll íslenskir ríkisborgarar.
„Við stöndum uppi sem viðundur því kerfið gerir ekki ráð fyrir okkur,“ sagði Jón Ármann í þættinum Bítið á Bylgjunni í morgun. Það eru margir hvatar að því að fara frá Íslandi, sagði Jón Ármann en kerfið er ekki byggt fyrir þá sem vilja snúa aftur til landsins.
Dóttir Jóns hóf nám í níunda bekk grunnskóla, en þar sem hún er íslenskur ríkisborgari á hún ekki rétt á því að fá stuðningskennslu í íslensku. Stúlkan mun vera komin nokkuð lengra í mörgum greinum skólans en aðrir nemendur, en á erfitt með að tjá sig á íslensku fræðimáli, enda hugarheimur hennar að mestu leiti enskur.
Jón Ármann segir að dóttir sín hafi þó verið heppinn þar sem hún hefur átt auðvelt með að eignast vini en segir að ljóst sé að hún fengi mun meiri stuðning ef hún væri nýbúi en snúbúi. Jón Ármann segist þó hafa mætt góðum vilja hjá þeim sem fjölskyldan hefur þurft að eiga við, það sé hinsvegar kerfið sem hreinlega bjóði ekki upp á aðstoðina og engar fjárveitingar séu til staðar. „Það eru margir steinar lagðir í götu viðkomandi,“ segir Jón Ármann.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013