ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.6° 10m/s S

Steve Jobs: Ætlaði að mala Google

Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
14:00 › 22. október 2011
Steve Jobs ætlaði að ganga frá Google.

Steve Jobs ætlaði að ganga frá Google. Mynd Reuters

Steve Jobs, stofnandi og fyrrverandi stjórnandi Apple, var brjálaður út í það sem hann kallaði „stórþjófnað“ eins af samkeppnisaðilum fyrirtækisins, Google, á hugmyndum Apple. Hann var ómyrkur í máli þegar hann talaði við samstarfsfélaga sína um samkeppnisaðilann.

„Ég er tilbúinn að fara í kjarnorkustríð út af þessu,“ er haft eftir Jobs í nýrri ævisögu hans sem rithöfundinn Walter Isaacson vinnur nú að. Ævisagan byggir að fjölda samtala Isaacson við Jobs sem þeir áttu aðeins nokkrum vikum áður en Jobs lést.

Jobs var samkvæmt gögnum Isaacson brjálaður út í Google vegna snjalltækjastýrikerfisins þeirra Android. „Ég mun eyða síðustu andardráttum mínum ef ég þarf þess, og ég mun eyða öllum þeim 40 milljónum dala sem Apple á, til að leiðrétta málið. Ég ætla að ganga frá Android, því það er stolin vara,“ er Jobs sagður hafa sagt.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?