Um 105 manns hafa látist í flóðum og aurskriðum sem hafa gengið yfir Mið-Ameríku undanfarna tíu daga. Hátt yfir milljón manns hefur orðið fyrir tjóni vegna flóðanna.
Ástandið er verst í El Salvador en forseti landsins, Mauricio Funes, sagði í ávarpi við þjóðina í vikunni að þetta væru einar mestu hamfarir í sögu landsins. Stjórnvöld í ríkjum á hamfarasvæðunum hafa óskað eftir neyðaraðstoð og talið er að hún muni fara aðallega til íbúa í Gvatemala, Hondúras, Nikaragúa og El Salvador. Ríki sem hafa svarað neyðarkallinu eru m.a. Bandaríkin, Spánn, Taívan og Venesúela.
1520 millimetrar af regnvatni hafa fallið á síðustu dögum í El Salvador en það er þrisvar sinnum meiri úrkoma en í meðal mánuði. Til samanburðar falla um 800 millimetrar af vatni í Reykjavík á meðal ári.
Yfirvöld hafa áhyggjur af því að vistir í einangruðum þorpum geti klárast og að erfitt geti verið að endurnýja þær. Útbreiðsla sjúkdóma er líka áhyggjuefni.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi