Bandaríska varnarmálastofnunin og jarðfræðistofnun Bandaríkjanna vilja vera fyrstir til að vita það ef jarðhræringar eiga sér stað í nágrannaríkinu Mexíkó. Stofnanirnar tvær hafa ákveðið að eyða hálfri milljón Bandaríkjadala í að setja upp jarðskjálftamæla í kringum landamæri ríkjanna tveggja, samkvæmt Los Angeles Times.
„Við erum bara með stóran blindan blett í suðri – nema við fáum gögn úr mexíkóskum jarðskjálftamælum. Við viljum geta séð betur hvað er að gerast og hvað gæti fylgt í kjölfarið,“ segir Doug Given, stjórnandi verkefnisins. Tilgangurinn með jarðskjálftamælunum er að auka á upplýsingaflæði til jarðfræðistofnunnar Bandaríkjanna svo hægt sé að fylgjast með hvar uppruni skjálfta er og hvar reikna má með eftirskjálftum.
Mexíkósk stjórnvöld standa einnig í endurbætum á sínum jarðskjálftamælum á svæðinu. Endurbætur mexíkóskra stjórnvalda eru þó talsvert umfangsmeiri en það verkefni sem banarísk stjórnvöld hafa farið út í. Kostnaður mexíkóska ríkisins nemur um 50 milljón dala, um 100 sinnum meira en kostnaður Bandaríkjanna.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi